Hótel Reykjavík
Vinalegt hótel miðsvæðis í Reykjavík
Hótel Reykjavík er aðlaðandi og nútímalegt hótel í hjarta Reykjavíkur. Þaðan er stutt að ganga hvort sem er í gamla miðbæinn, Kringluna eða Perluna. Einnig er Hlemmur á næsta leiti og þaðan eru strætisvagnaferðir í allar áttir, auk þess sem stutt er að fara á innanlandsflugvöllinn og B.S.Í.
Hótelið býður uppá vinalega og góða þjónustu og rólegt andrúmsloft. Á hótelinu eru 79 þægileg herbergi, þar á meðal svítur og fjölskylduherbergi. Herbergin eru hlýleg, með baði og/eða sturtu, minibar, síma, gervihnattasjónvarpi, payTV, þráðlausu interneti, útvarpi, hárþurrku og svo framvegis. Svíturnar og fjölskylduherbergin eru á tveimur hæðum, svefnherbergin eru uppi en rúmgóð setustofa á neðri hæð. Einnig er boðið uppá reyklaus herbergi. Bílageymsla hótelsins stendur gestum okkar til boða.
Á hótelinu er veitingastaðurinn Rauðará restaurant, einnig er boðið upp á morgunverðarhlaðborð á hverjum morgni. Okkar rómaði hótelbar er að sjálfsögðu opinn á hverju kvöldi. Margir af áhugaverðustu stöðum borgarinnar eru í næsta nágrenni við hótelið og ýmis söfn innan seilingar
Fréttir og tilboð
Jungle Drum og Inspired by Iceland
Hefur Ísland veitt þér innblástur? Láttu þína sögu berast og fáðu aðra vini þína hér heima og erle...
Meira





