Rauðará

Rauðará Steikhús - með bestu og safaríkustu steikurnar í bænum

Rauðará Steikhús er í hjarta miðborgarinnar og er tilvalinn staður til að njóta ánægjulegra stunda í fallegu umhverfi og notalegu andrúmslofti.

Matseðillinn er fjölbreyttur þar sem áhersla er lögð á úrval sjávarrétta og léttra rétta en að sjálfsögðu var haldið fast í aðalsmerki staðarins sem eru gómsætar og safaríkar steikur af ýmsum toga.

Staðurinn sjálfur skartar fallegu innviði í klassískum stíl í bland við nýja strauma. Hið glæsilega húsnæði er sögulegt að mörgu leyti og hefur verið leitast við að viðhalda upprunalegu útliti að utan sem innan. Í húsinu var eitt elsta brugghús borgarinnar starfrækt eða allt frá 1930 og allt þar til Ölgerð Egils Skallagrímssonar fluttist þaðan í nýtt húsnæði 1988.

more

Fréttir og tilboð

Jungle Drum og Inspired by Iceland

Hefur Ísland veitt þér innblástur? Láttu þína sögu berast og fáðu aðra vini þína hér heima og erle...

Meira