Gistu á Hótel Reykjavík
05.10.2009
Það er tilvalið að gista á Hótel Reykjavík og klára jólainnkaupin á nokkrum dögum. Hótel Reykjavík er vel staðsett í stórborginni, miðsvæðis við allar helstu verslunarkjarna. Það er stutt að komast niður í miðbæ þar sem Laugavegurinn er rétt við hótelið og skemmtilegt að rölta upp á Skólavörðuholtið frá hótelinu.
Á Skólavörðustígnum eru fjölmargar verslanir þar sem ótrúlega mikið úrval af jólagjöfum, hvort sem það eru skartgripir, listmunir, fatnaður eða aðrir fylgihlutir. Þar eru líka skemmtileg kaffi- og veitingahús sem notalegt er að taka sér smá hlé frá jólainnkaupunum. Laugavegurinn stendur alltaf fyrir sínu og fátt skemmtilegra en að rölta þar upp og niður í góðra vina hópi.
Gerðu jólainnkaupin snemma og leyfðu okkur á Hótel Reykjavík að stjana við þig og þína.