BEST WESTERN Hotel Reykjavík - Rauðarárstígur 37 -105 ReykjavíkSími: +354 514 7000 - Fax: +354 514 7030 - info@hotelreykjavik.is

Contact us

Tel: +354 514 7000 info@hotelreykjavik.is
The world biggest hotel family™

Fréttir og tilboð

Jungle Drum og Inspired by Iceland

04.06.2010

Inspired by IcelandHefur Ísland veitt þér innblástur? Láttu þína sögu berast og fáðu aðra vini þína hér heima og erlendis að gera slíkt hið sama. Fimmtudaginn 3. júní hófst þjóðarátak í tengslum við markasherferðina Inspired by Iceland sem ferðaþjónustan, ríkið, Reykjavíkurborg og Útflutningsráð standa sameiginlega að á erlendum vettvang. Ætlunin er að virkja íslenskan almenning og fá fólk til þess að vekja jákvæða athygli á Íslandi undir heitinu Þjóðin býður heim.

Á vefnum Inspired by Iceland skemmtilegt myndaband og eru allir hvattir til að senda það til fjölskyldu, vina, kunningja og viðskiptafélaga erlendis. Hægt er að senda myndbandið á öllum tímum. Landsmenn eru hvattir til þess að sýna samstöðu og leggja efnahagslegri uppbyggingu lið. Mikilvægt er að koma þeim skilaboðum á framfæri að landið sé opið og aðgengilegt, viðskipti gangi fyrir sig með eðlilegum hætti og einmitt nú sé rétti tíminn til þess að heimsækja land og þjóð. Tilgangurinn með þjóðarátakinu er að fjölga ferðamönnum til Íslands, auka gjaldeyristekjur þjóðarbúsins og lágmarka þann skaða sem eldgosið í Eyjafjallajökli olli ferðaþjónustu og tengdum greinum.

Í myndbandinu fléttast saman glettnar svipmyndir og myndskeið frá mörgum fallegustu stöðum landsins. Myndbandið samanstendur af hressilegum og skemmtilegum myndum af fólki sem dansaði við Jungle Drum, lag og söng Emilíönu Torrini, við ólíkar aðstæður á Íslandi. Myndbandið er til þess fallið að leiðrétta ranghugmyndir um ástandið hér á landi. Mikilvægt er að koma þeim skilaboðum á framfæri að landið sé opið og aðgengilegt, viðskipti gangi fyrir sig með eðlilegum hætti og þess vegna sé það rétti tíminn núna að heimsækja land og þjóð.

Fréttir og tilboð

Fréttir og tilboð

Fyrsta Best Western hótelið opnað á Íslandi

Þann 1. apríl síðastliðinn bættist  Hótel Reykjavík í Best Western International hótelkeðjun...

Meira

&nbps;

We value your opinion

At BEST WESTERN, we truly care about your experience. If there is anything we can do to improve your stay, please contact the front desk immediately.

/www.­bwfeedback.­com
Hvert Best Western® hótel er í séreign og rekið sjálfstætt. - www.bestwestern.com - www.bestwestern.dk