Er brúðkaupsafmæli á næstunni?
14.06.2011
Langar ykkur til að halda upp á brúðkaupsafmælið? Við á Grand Hótel Reykjavík tökum fagnandi á móti hjónum sem eiga brúðkaupsafmæli. Það er ávallt tilefni til að fagna hjúskaparafmæli og rétt að gera sér glaðan dag á slíkum tímamótum.
Brúðkaupsafmælistilboð á Grand Hótel Reykjavík innifelur:
Gisting fyrir hjónin í executive glæsiherbergi í turni hótelsins. Herbergin eru 23 - 30 m2 með Queen size rúmi og úr turni hótelsins er stórkostlegt útsýni yfir borgina og út á sundin blá.
- Óvæntur sérútbúinn afmælisglaðningur bíður hjónanna uppi á herbergi.
- Í boði er fjögurra rétta glæsimáltíð að hætti matreiðslumeistarns ásamt léttvínsflösku.
- Morgunverðarhlaðborð er einnig innifalið.
Brúðkaupsafmælið er aðeins á 28.600 krónur fyrir parið.*
*Er ekki í boði í maí, júní, júlí og ágúst.
Frekari upplýsingar og pantanir
Gerið brúðkaupsafmælið að eftirminnanlegum degi og njótið hans á Grand Hótel Reykjavík. Leyfið okkur að dekra við ykkur á þessum hátíðisdegi í lífi ykkar.