BEST WESTERN Hotel Reykjavík - Rauðarárstígur 37 -105 ReykjavíkSími: +354 514 7000 - Fax: +354 514 7030 - info@hotelreykjavik.is

Contact us

Tel: +354 514 7000 info@hotelreykjavik.is
The world biggest hotel family™

Fréttir og tilboð

Íslenska tímatalið endurvakið

04.01.2012

Gamla íslenska tímatalið hefur verið endurvakið og er nú komið á prent í formi dagatals. Dagatalið er gefið út af Grand Hótel Reykjavík og er það skreytt með myndbrotum úr stærsta glerlistaverki landsins eftir Leif Breiðfjörð.
Gamla íslenska tímatalið„Útgáfan á þessu dagatali er í anda þess þema sem er í gangi á hótelinu og tengist norrænu goðafræðinni,“  segir Þórdís Hrönn Pálsdóttir sölustjóri Grand Hótels Reykjavíkur. „Á hótelinu höldum við í gömlu hefðirnar og alls staðar á hótelinu má finna nöfn sem tengjast þessum tíma.
 
Til dæmis Miðgarður sem hýsir aðalmóttöku hótelsins var notað um hina byggðu jörð í norrænni goðafræði. Glerlistaverkið eftir Leif Breiðfjörð í móttökunni byggir á kvæðinu Völuspá.  Einnig tengjast nöfnin á ráðstefnu- og fundasölunum gamla tímanum.”

Íslenska tímatalið er það tímatal sem notað var af Norðurlandabúum þar til hið svokallaða júlíska tímatal tók við sem almennt tímatal. Það einkennir tímatalið að reiknað var í misserum en ekki árum. Misserin voru jafnlöng og skiptust í vetur, sem hófst fyrsta vetrardag og taldi gormánuð, ýli, mörsug, þorra, góu og einmánuð, og sumar, sem hófst fyrsta sumardag og taldi hörpu, skerplu, sólmánuð, heyjannir, tvímánuð og haustmánuð. Mánaðarheitin miðuðust við árstíðir sveitasamfélagsins. Tímatalið miðast annars vegar við vikur, fremur en daga, og hins vegar við mánuði, sem hver um sig taldi 30 nætur. Þannig hefjast mánuðirnir á ákveðnum vikudegi, fremur en á föstum degi ársins. Hin fornu íslensku heiti vikudaganna eru; sunnudagur, mánadagur, týsdagur, óðinsdagur, þórsdagur, frjádagur og laugardagur.

Fréttir og tilboð

Fréttir og tilboð

Fyrsta Best Western hótelið opnað á Íslandi

Þann 1. apríl síðastliðinn bættist  Hótel Reykjavík í Best Western International hótelkeðjun...

Meira

&nbps;

We value your opinion

At BEST WESTERN, we truly care about your experience. If there is anything we can do to improve your stay, please contact the front desk immediately.

/www.­bwfeedback.­com
Hvert Best Western® hótel er í séreign og rekið sjálfstætt. - www.bestwestern.com - www.bestwestern.dk